Nú fer að líða að jólum og ég tel mig hafa verið nokkuð góða í ár, fyrir utan sumt sem ég ætla ekkert að fara út í því þú veist eflaust um hvað ég er að tala. Í heildina litið var ég semsagt alveg ágæt... Ástæða þessa bréfs er að ég heyrt að hefð sé fyrir því að gott fólk, eins og ég, skrifi þér til að fá umbun fyrir góðsemi ársins. Ef svo er þá máttu endilega gefa mér eftirfarandi hluti. Myndir fylgja með svo ekkert fari á milli máli.
Þinn einlægi aðdáandi
13 vikna Yoga-kort í Kramhúsinu
Fallegt dömuhljól með körfu. Helst rautt.
Ævintýralega yndislegt sumarhús í Mývatnssveit. Má líka vera í franskri sveit eða ítalskri.
Franskar makkarónur frá Laduree, helst þessar gulu og grænu. Þær eru bestar.
Draumabrúðkaupskjóllinn minn frá TheVintageWeddingdressCompany. Má líka koma næstu jól. Ef hann er ekki til, máttu láta mig vita, því það eru aðrir þarna sem ég myndi líka vilja
Parísarferð fyrir 2 í viku með fínasta hóteli miðsvæðis.
Æðislegur ilmur frá L'Artisan. Fæst í Kisunni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli