22.12.10

BaBaBaBaBaBaBað!

Loksins hef ég lokið við og skilað ritgerð sem ég hef haft yfir mér síðastliðin mánuð. Vegna anna, prófa, veikinda, vinnu og leti hef ég ekki komið mér í að klára hana og voila tók ekki nema 2 daga.

Í tilefni þessa ætla ég að halla mér aftur og ímynda mér freyðibað...

... helst á fótum

 með slakandi lavenderfreyðibaði frá L'occitane

Ekki myndi spilla æðislegur olive-hármaskinn sem gerir hárið undurfagurt og heilbrigt. Og að sjálfsögðu slakandi ilmkertið.
Himneskt!

Ekki nóg með að vera ekki með baðkar þá er raunin sú að lagnirnar í húsinu eru í fokki og lítið sem ekkert vatn kemur úr sturtunni. Annars hefði almond shower oil frá L'occitane verið mjög næs núna.

p.s. ég þrái bað!





Guilty pleasure #1

11.12.10

Til Jólasveinsins

Elsku jólasveinn.
Nú fer að líða að jólum og ég tel mig hafa verið nokkuð góða í ár, fyrir utan sumt sem ég ætla ekkert að fara út í því þú veist eflaust um hvað ég er að tala.  Í heildina litið var ég semsagt alveg ágæt... Ástæða þessa bréfs er að ég heyrt að hefð sé fyrir því að gott fólk, eins og ég, skrifi þér til að fá umbun fyrir góðsemi ársins. Ef svo er þá máttu endilega gefa mér eftirfarandi hluti. Myndir fylgja með svo ekkert fari á milli máli.
Þinn einlægi aðdáandi

Oh.

13 vikna Yoga-kort í Kramhúsinu

Fallegt dömuhljól með körfu. Helst rautt.

Ævintýralega yndislegt sumarhús í Mývatnssveit. Má líka vera í franskri sveit eða ítalskri.

Franskar makkarónur frá Laduree, helst þessar gulu og grænu. Þær eru bestar.

Draumabrúðkaupskjóllinn minn frá TheVintageWeddingdressCompany. Má líka koma næstu jól. Ef hann er ekki til, máttu láta mig vita, því það eru aðrir þarna sem ég myndi líka vilja

Parísarferð fyrir 2 í viku með fínasta hóteli miðsvæðis. 

Æðislegur ilmur frá L'Artisan. Fæst í Kisunni.

Og að lokum væri mjög fallegt af þér að gefa mér eitt fallegasta hús Reykjavíkur, á Túngötunni. Meistari Guðjón Samúelsson teiknaði það. Draumahúsið mitt.

Takk enn og aftur. Elska þig!

Uppáhalds í augnablikinu

Gamlar auglýsingar - fallegar og fáranlegar

  


10.12.10

Uppáhalds í augnablikinu

Vælublogg

Hiti, sviti, hor og væl. Fátt ömurlegra en veikindi. Væl er ávallt stór þáttur í mínum veikindum. Allt er ómögulegt, algjört vonleysi og vanlíðan. Maka mínum til mikillar gleði læt ég eins og ofvaxið, ofdekrað barn sem þráir stöðuga athygli. Mér líður illa og allur heimurinn á að vita það. Ég geng jafnvel það langt að stofna blogg til að koma þeim skilaboðum áleiðis. Þar hafiði það. Mér líður illa og þið skuluð gjöra svo vel að finna til með þér. En svona fyrir utan það að láta ykkur vorkenna mér þá mun ég gera allskonar hérna, allt frá öllu til alls.